Sandra segir sitt.... Gaman að 'essu

Flott fólk
Bylgja Beikon
Freyr Tískulögga
Maggý Gella
Finnur Töff
Ásta-ló
Toggi Hetja
Heiða Rauða
Valur Svalur
Hagnaðurinn
Arnar Pjé
Daði Guð
Maggi Peran

Hafðu samband
Tölvupóstur
SMS

Gamalt

  • 07/01/2003 - 08/01/2003
  • 08/01/2003 - 09/01/2003
  • 09/01/2003 - 10/01/2003
  • 10/01/2003 - 11/01/2003
  • 11/01/2003 - 12/01/2003
  • laugardagur, nóvember 08, 2003

      Bad TV....

      Einhversstaðar í þynnku minni fann ég einhverja auka orku og skellti mér því í Baðhúsið góða. Á meðan ég hljóp var ég að horfa á Djúpu Laugina, skrítið að ég hafi ekki verið búin að minnast á þetta fyrr. Hvað er dökkhærða gellan sem stjórnar þættinum fokking leiðinleg!!??? Díííses ég get varla horft á hana.. ég fyllist bara viðbjóði og ógeði. Sorry en mér finnst hún ekki vera að virka... mér finnst hún ehvað svo too much.. alltof mikið að REYNA vera fyndin með allskonar grettum og geiflum.
      Mér finnst Auður þessi ljóshærða algert æði þó!

      En í þættinum í dag var einmitt strákur sem er vinur vina minna hérna úr Breiðholtinu...rauðhærði gaurinn á endanum, Balli heitir hann... en ég er ekki að fara tala um hann sko... langar að minnast á það að gellan sem var að spyrja var ekki að gera neina sérstaka hluti fyrir mig.
      Og hvað með leiðinlegasta djúpu laugar atriði í GEIMI... gaurarnir þurftu að leggjast á bakið og vera með enhverjar kúnstir sem tóku ALLTOF langan tíma og voru EKKERT skemmtilegar.... það hefði verið skömminni skárra ef þeir hefðu átt að fara í armbeygjukeppni eða hoppa á annari eða eitthvað þvíumlíkt. Skil bara ekki afhverju þetta atriði var samþykkt. Boooring.
      Ég ætlaði nú ekki að vera svona rosalega neikvæð...það er ekki alveg líkt mér... en ég er þunn og þreytt og má það alveg núna.

      Svo er bara að fara gera sig til fyrir 2 afmæli og eitt -2 party.... afhverju þarf alltaf allt að vera gerast í einu... ég veit ekkert hvernig ég ætla að skipta þessu því mig langar jafnmikið að fara í allt sko.. hmmm það kemur í ljós.... ég er að fara tjútta með vinkonu minni sem er ekkert alltof opin fyrir nýjum hlutum og hún er bara að fara í eitt af þessum afmælum og vill ööörugglega ekki fara neitt annað að hitta nýtt fólk...
      ætli ég endi bara ekki með henni að sötra rauðvín inni á Pravda eða Thorvaldsen (ég hata rauðvín og finnst það viðbjóður en það lúkkar betur á þessum snobb stöðum heldur en hálfur lítri af bjór)
      Jæja það kemur í ljós... ég ætla allaveganna að skemmta mér vel í kvöld og vona að þið lesendur góðir gerið slíkt hið sama. Góðar stundir!

    Sandra :: 6:50 PM ::

      Passa sig Sandra....

      Mamma mía hvað mín er þunn núna. Gaman var í gærkveldi og tjúttaði ég til ca.7 og ég er alveg búin að sjá það að þegar ég er í glasi og klukkan er orðin svona ca.bát 4 þá mega allir sem ég þekki og hitti á þessum tíma vinsamlegast taka af mér símann. Oh ég fer alltaf í eitthvert hringinga stúss í einhvern sem ég ætti ekki að gera eða sendi sms sem mér finnst cool þegar ég sendi það og dauðsé svo eftir því daginn eftir. Shit hvað ég fékk mikinn móral í dag útaf einu slíku díííses maður er ekki í lagi. Svo fór í í Last Dialed Numbers hjá mér... í hvern hringdi ég EKKI? ekkert skrítið að Frelsið mitt fuðrar svona upp.
      En það er allt í gúddí núna samt... er búin að clear things out við viðkomandi hjúkket.
      En halló, kannast ekki ehverjar stelpur við þetta vandamál??

    Sandra :: 6:43 PM ::

      Skilaboð til Söndru....

      Til sms nauðgarans:
      Þú spurðir hvort ég væri ekkert að fatta hver þetta væri. Neibbs hef ekki hugmynd. En greinilega ehver sem ég þekki og er að stríða mér og ekki forvitninnar virði því ég er viss um að þegar/ef ég kemst að því þá verð ég alveg "ó ert þetta svo bara þú eftir allt saman, þúúúúú, ha ha fyndið"

    Sandra :: 6:35 PM ::

    fimmtudagur, nóvember 06, 2003

      Stelpur dansa....

      Þessa dagana er ég að hjálpa til á gamla vinnustaðnum mínum Café Mílanó. Tók einmitt 13 tímana í dag...til 24:00...shit var búin að gleyma hvað þetta var rosalegt... það er svo mikil geðveiki allan daginn barsta. Og ekki eru konur 35+ skemtilegustu kúnnarni (það er markhópurinn sko, sviss mokka og smörrebröð)
      En mig furðaði hvað það er endalaust mikið af fólki sem kemur þarna sem er sama fólkið og stundar Players... mér leið í dag og í gær alveg eins og ég væri barsta stödd í kópavoginum... fyrir utan það að í Kópav. eru miklu fleiri sætir strákar og hvað kaffið er miklu betra á Mílanó... (ég drekk reyndar sjálf ekki kaffi)

      Og ekki er búið að vera leiðinlegt að núna 3.daginn í röð kemur þarna um 4 leytið ehver sá myndarlegasti strákur/maður sem ég hef á ævi minni augum litið og drekkur kaffi Laté í glasi og vatnsglas takk fyrir með. Guð minn eini... Hvað heitir hann, hvað gerir hann, hvar tjúttar hann?? Og afhverju er maðurinn svona myndarlegur ég bara spyr.... hehe ég er semsagt enn á gelgjuskeiðinu mínu þar sem ég sé sæta stráka á hverju horni og er að spá í þeim sem ég hef verið á síðastliðna tæpa 2 mánuði... Hvað er að mér.. ég er alveg eins og ehver tístandi smápíka.
      En ef hann kemur aftur á morgun eða hinn... með hverju mæliði að ég segi eða geri til að komast að ehverju um hann.....(búin að reyna skoða kortið hans..hann borgar bara alltaf cash)
      Þið vitið það að ég er nú ekki feimin manneskja en vó... þegar um svona sæta gaura er að ræða þá er ég alveg eins og hlédrægasta og ansalegasta manneskju í geimi.
      What to do what to do??

      Og já... By the way... ekki það að ég sé ehvað að deyja úr forvitni eða neitt svoleiðis...Alls ekki sko... en þá sá/sú sem er að senda mér sms af vit.is endilega kíkja til mín í kaffi á Mílanó á morgun um 6 leytið... ég splæsi...ef þú þorir!!! Ekki svona aulaskap...mættu á svæðið..... skrifaðu undir nafni...eða allavegnna númeri! Takk fyrir það :)

      Já svo er það laugardagstjútt hjá mér um helgina.. ég er alveg harðákveðin á því.... Ammæli og partý... Ég ætla meirað segja dusta rykið af dansskónum og setja poolkjuðann á hilluna á laugardaginn. i Looove to dance og ég ætla að gera nóg af því woohoo!!
      Sjáumst!

    Sandra :: 1:47 AM ::

    þriðjudagur, nóvember 04, 2003

      Come out come out whoever you are.....

      Hver er að senda mér sms frá vit.is á nafns????
      I want to know... NOW!!
      Takk fyrir :)

    Sandra :: 1:51 AM ::

      Same old same old.....

      Jahérna hér.... ehvað þarf maður að fara láta sparka í rassgatið á sér með þetta blogg hérna... það OG láta ehvern snilla líta á tölvuna mín sem er alveg að gera mig snaaaaargeðveika!! Bróðir minn er alltaf á leiðinni að fara gera það en... hann er búinn að vera að því síðan allt vírusadæmið var að byrja þannig eitt er víst að ég held ekki niðrí mér andanum við að bíða eftir því.

      Helgin var eins og allar aðrar helgar eru hjá mér.... þetta fer að verða alltof vanafast hjá mér... djamm á föstudegi og vinna á laugardegi...alltaf geri ég það sama, drekk með sama fólkinu fer á sömu staðina, og enda alltaf ein af þeim síðustu í bænum.... það er ekki í lagi með mig.. ég er svona týpa sem held alltaf að ég sé að missa af ehverju.. það er ferlegt að vera soleiðis.... finnst ég þurfa að vera allta allsstaðar.

      Ég ætla ekki að vera með neinar rosalegar yfirlýsingar en ég er að spá í að fara minnka tjúttið aðeins.... bæði er það orðið svo vanafast og ekki þyngist pyngjan við það.
      Ég ætla aðeins að breyta til... vinna á föstudag og tjútta á laugardag.. ammæli og svo ehvað MA gettogether sem ég fer með bróðir mínum á, ég ætla að missa mig.... þið vitið...drekka ógeðslega mikið... fara á marga staði, hitta mikið af fólki og enda á því að verða ekki viðræðuhæf svo ég fái alveg ógeð af tjútti og taka mér svo smá pásu í Nóvember...
      Nú er ég líka á fá svo mikla aukavinnu á Café Mílanó gamla vinnustaðnum mínum... svo er ég að fara að vinna á stöð2 við smá verkefni...fæ að ráða vinnutímanum sko... og svo ætla ég að bæta við mig á Players... hef verið löt við helgarvinnuna þar... var komin með smá leiða sko.. en ég ætla að vinna eins og mother fokker og eiga fullt af pening í desember svo ég geti gefið öllum sem mig langar til að gefa jólagjafir!!

      Svo er ég náttlega að fara út eftir áramót og verð ég að fara reyna vera alger Jóakim allaveganna í ehvren smá tíma...Ég er ekki búin að segja ykkur frá því.... skýri betur frá síðar... so stay tuned og ekki missa trúna á mér og hætta að koma þó ég sé löt við bloggið elskurnar mína ;) Takk

    Sandra :: 1:38 AM ::

    miðvikudagur, október 29, 2003

      Sandra Bjé í Villtu Vinna Milljón!

      Á mánudaginn fór ég með systir minni sem vinnur hjá stöð2 uppí Loftkastala þar sem Viltu Vinna Milljón þættirnir eru teknir upp... þar vorum við tvær að aðstoða við prufutökur á 1.þættinum.
      En það er einmitt gamli popparinn Jónas R.Jónsson (Slappaðu af gaurinn) sem er að fara stjórna þeim þáttum. Jisús minn eini... segi ekki mikið um þann gaur...þið eigið bara eftir að sjá hann sjálf sko.

      En þarna kepptumst við systur t.d. um að komast í heita sætið og bar ég oftast sigur úr bítum...áttum að raða ehverju í stafrófsröð og soleiðis skemmtilegt... en einmitt þegar ég var í heita sætinu þá komst ég upp í 450.þús og átti enn 1 kost eftir... ég var alveg að brillera en var svo handviss um síðasta svarið mitt að ég ætlaði sko að geyma síðasta kostinn þar til að í harðbakkan slæi...en allt kom fyrir ekki og ég tapaði :)
      En einmitt eftir það þá vorum við ehvað að spjalla, ég, Jónas og sviðsstjórinn og Jónas var ehvað að tala um að hann þyrfti að ná bara rétta tempóinu.... þá skaut ég að kallinum... "eigum við bara ekki að skipta um sæt?"i.... undirtektirnar voru ekki góðar en HALLÓ.... Persónulega held ég að ég yrði barasta MIKLU betri Viltu Vinna Milljón þáttastjórnandi heldur en hann gamli popparinn!

      En þetta var skemmtileg reynsla og gaman að geta sagt frá því að maður hafi prufað þetta þó engir áhorfendur hafi verið nema bara töku og hljóðmennirnir og þetta var ekki alvöru dæmið.... ehvað nýtt til að setja í reynslubókina bara.

      En Já svo ég komi mér nú að efninu þá hitti ég þarna Geira glæsimenni sem var ljósamaður í ABBA sýningunni okkar hér í fyrra og hann benti mér á (þar sem ég er atvinnulaust highschool dropout) að tala við sviðstjórann hann Eyþór um vinnu þarna hjá þeim...myndi vera standa í allskonar baktjaldamakki í hinum og þessum þáttum (ekki leiðinlegt fyrir fjölmiðlafræðinemann hana Söndru) Eftir daginn fór ég til hans og hann sagði mér að koma til sín ehverjum upplýsingum daginn eftir og hann skyldi hafa samband. Vúúú þannig að í dag kom ég til hans þessu fínasta resumé'i og bið ég ykkur lesendur góðir um að bæta því við í bænirnar ykkar í kvöld von um að ég fái djobbið!
      Með von í hjarta
      Virðingafyllst, ykkar einlæg
      Sandra sæta!

    Sandra :: 7:19 PM ::

      Toggi tæknitröll!....

      Nú hefur Toggi tölvukallinn minn (Finnur er líka tölvukallinn minn sko) sett fyrir mig ansi sniðugan teljara inn á síðuna mína. Þar get ég séð náttlega hvursu margir og svo líka alltaf 10 síðustu heimsóknir hvaðan nákvæmlega þær koma. vúhú... kannski er ég svoldið eftir á og kannski eru allir aðrir með soleiðis líka en mér finnst þetta ansi sniðugt og færi hér með Toggsternum mínar bestu þakkir! Takk Toggi minn :)

    Sandra :: 7:16 PM ::

      Draumadísin hún Sandra!....

      Mér fannst ansi gaman að sjá hjá henni Berit stelpu sem er að blogga sem ég þekki ekki neitt að hún talar um drauma sína og að oftast man hún ekki eftir neinum nema mér :) tékkið á þessu hress stelpa þarna á ferð... því miður er tölvan mín svo klikkuð þessa dagana að ég get ekki linkað svo hér er slóðin http://www.berit.blogspot.com

    Sandra :: 7:13 PM ::

    mánudagur, október 27, 2003

      Jahérna hér.....
      Föstudagskvöldið var vel heppnað í alla staði nema að því leytinu til að gæran í gula bolnum í Idolinu komst lengra en hún Erna beibí. Hljóta að hafa verið brögð í tafli!
      En GUÐ minn góður ef hægt væri að kaupa eintak af henni Önnu Katrínu útí búð myndi ég kaupa heilan kassa af henni!! Meiriháttar dúlla sem ég styð nú heils hugar restina af Idol keppninni.... auk Helga Hrafns litli dúllustrákurinn með Njálssöguna!

      Á laugardaginn var ég handónýt stelpa, þynnku þreytt og ógeðsleg fram eftir öllu. Þegar ég fór um kvöldið að vinna á Players var ég sko ekki í gúddí fíling og bjóst ekki mikið við því að bros mitt blíða myndi skína framan í gestina það kvöldið.... en það var svo um 23:00 sem lund mín léttist til muna og ég skal segja ykkur það að ég lék á alls oddi restina af kvöldinu dansandi og syngjandi meðal kúnnana við undirleik Kalla Örvars og co í hljómsveitinni Hunang..sem klikkar by the way aldrei!
      I was a dance maniac!

      Hvað ætli sé að gerast næstu helgi?... ég hlakka alltaf til helganna.. eins og sennilega flest allt geðheilbrigt fólk í heiminum.
      Mér gekk þó ekki vel á poolmótinu í dag.. datt út í 8 manna úrslitum...tapaði fyrir Palla 2-1 :(
      En á föstudaginn var allt aðra sögu að segja af mér í þessum málunum... græddi fullt og buddan mín léttist eiginlega ekki neitt þrátt fyrir stíft djamm og drykkelsi.

    Sandra :: 12:46 AM ::

    föstudagur, október 24, 2003

      Föstudagur...Idol....Bjór..Pool... gerist ekki betra!!!

      Allt að gerast! Jesús hvað Idolið verður spennó í kvöld shit! Vinkona mín hún Erna verður á meðal þeirra 8 sem stíga á svið í kvöld og vil ég að allir kjósi hana því hún er langbest og rokkar! S:900-2003 pop idol3!
      Með fyrirfram þökkum Sandra og Erna!

      En svo verður líka meira gaman því ég og pool vinkona mín hún Íris sem vinnur með mér á Players erum báðar í fríi í kvöld.. það gerist ekki oft svo strákar þið sem hittið okkur í Pool á Players og síðar í kvöld á Gauknum, haldið vel í veskin ykkar og/eða get ready to be whipped! Við erum þokkalega í stuði og verðum aðalgellurnar í kvöld. Þemað hjá okkur í er Villt!!
      Planið... Málning hjá Elsu beibí 19:00.....Idol og fajitas með kjúklingi og meðlæti á Players um 20:00.... bjórdrykkja og pool frá 22:-ca 01...meiri bjórdrykkja og pool á Gauknum frá 01:30 -????
      Ef þú ert á djamminu og langar að sjá sætar stelpur og spila við þær pool hafðu þá endilega samband. Nr. er hér í vinstra horni :)
      Góða helgi allir saman... Og happy Idol kvöld í kvöld!. .Kjósum rétt...Kjósum Ernu!

    Sandra :: 6:29 PM ::

      Allt að gerast! Jesús hvað Idolið verður spennó í kvöld shit! Vinkona mín hún Erna verður á meðal þeirra 8 sem stíga á svið í kvöld og vil ég að allir kjósi hana því hún er langbest og rokkar! S:900-2003 pop idol3!
      Með fyrirfram þökkum Sandra og Erna!

      En svo verður líka meira gaman því ég og pool vinkona mín hún Íris sem vinnur með mér á Players erum báðar í fríi í kvöld.. það gerist ekki oft svo strákar þið sem hittið okkur í Pool á Players og síðar í kvöld á Gauknum, haldið vel í veskin ykkar og/eða get ready to be whipped! Við erum þokkalega í stuði og verðum aðalgellurnar í kvöld. Þemað hjá okkur í er Villt!!
      Planið... Málning hjá Elsu beibí 19:00.....Idol og fajitas með kjúklingi og meðlæti á Players um 20:00.... bjórdrykkja og pool frá 22:-ca 01...meiri bjórdrykkja og pool á Gauknum frá 01:30 -????
      Ef þú ert á djamminu og langar að sjá sætar stelpur og spila við þær pool hafðu þá endilega samband. Nr. er hér í vinstra horni :)
      Góða helgi allir saman... Og happy Idol kvöld í kvöld!. .Kjósum rétt...Kjósum Ernu!

    Sandra :: 6:29 PM ::

    miðvikudagur, október 22, 2003

      Blogg mania....

      Vá hvað ég er búin að vera með mikla ræpu..ég er ekki búin að vera blogga neitt af ráði svo lengi að ég hef bara sprungið. Nú er kl. 03:23 á miðvd. morgni og ég er enn að.
      Vinsamlegast byrjið að lesa neðst frá þessum degi ef þið nennið því..þá verður þetta í tímaröð sko :)


      Ég var fyrsta kvenkynsfórnarlamb Maxtersins í mánudagsviðtalið hans, sem á að fara vera reglulegur dagskrárliður eins og föstudagsviðtalið hans Freysa blessuð sé minning þess!
      Var ég á eityrlyfjum eða? Plís þið sem þekkið mig ekki og lesa þetta. Ekki dæma mig. Ég er hin vænsta stelpa!

    Sandra :: 3:22 AM ::

      Af tveimur böttum í horn!....

      Ég þarf að fara spila meira pool aftur eins og ég gerði alltaf svo reglulega... síðastliðna 5 mánuði hef ég ekkert verið að spila af ráði nema einungis á sunnudagsmótunum á Hverfisgötunni og einstaka Gauksmóti og þessu eina 9-ball móti sem ég tók þátt í fyrir alls ekki svo löngu.
      Ég hef alltaf verið að segja við gaura sem segja alltaf ef þeir tapa fyrir manni "díses ég er sko ekki búin að spila geðveikt lengi", hey skiptir ekki máli hvað það er langt síðan...annaðhvort hefur maður þetta í sér eða ekki!!
      Alger töffarasetning sem ég trúði samt ehvernveginn efst í huga mér sérstaklega þar sem aðeins fyrir 2 helgum stóð ég uppi sem sigurvegari á Hverfisgötumótinu loksins á einu af fjölmennustu mótum sem haldin hafa verið þar á bæ...hvorki meir né minna en 17 grey sem urðu að lúta lægri hlut fyrir mér......
      En guð minn eini.... þessi kenning getur ekki verið rétt...vonandi ekki því annars er ég eyðilögð og hef þetta greinilega ekkert lengur í mér....
      Á sunnudaginn spilaði ég ekki svo vel en komast áfram í 8 mannaúrslit þar sem ég tapaði 2-1 fyrir strák sem ég ÞOLI EKKI að tapa fyrir!
      Á mánudaginn var klíkumót á Gauknum og var í 1klst.boðið upp á frían bjór og auðvitað voru strákarnir að fá sér og hugsaði ég mér gott til glóðarinnar og hugsaði með mér að ég skyldi notfæra mér edrúmennsku mína og vinna þessa gaura alla! Sérstaklega Ara Glaumbar og Sævar snókerdúd.
      Eeeen neeeei... haldiðið bara að á ævi minni hef ég ekki spilað jafn illa og þetta kvöld.. ég get með sönnu sagt að ég held að ég hafi tekið eina kúlu flotta niður hinar voru bara drasl sem dugði mér ekki einu sinni til að komast í neinn helv.undanriðil! ég var afar tapsár og fór í hrikalega vont skap (sem er fyrir þá sem þekkja mig MJÖG ólíkt mér og engan veginn ehvað sem gerist oft á ári) og skammaðist mín eiginlega eftir á fyrir að hafa verið það því ég var meirað segja farin að hreyta í fólk og ekki svara mér? Jisús ég varð bara hrædd við sjálfa mig.
      Ég er ansi hrædd um að ég gæti verið farin að lose'a grip'ið á þessu öllu saman. Og það má sko EKKI gerast... þetta er ehvað það skemmtilegasta sem ég veit um, að spila billiard....vera góð í því...vera stelpa og vinna strákana! LOVE IT!
      Ég auglýsi hér með eftir sponser til að hjálpa mér að geta æft mig meira. Mig vantar slatta af pening til að borga fyrir að spila og gæti farið að vanta nýjan kjuða, það er farið að heyrast skuggalegt hljóð í öðrum mínum (þessum dýrari og flottari,held að framparturinn sé ehvað brotin) og ekki má ég taka hinn með mér út fyrir Players (hann er reyndar betri).
      Áhugasamir sendið mér tölvupóst eða skiljið eftir skilaboð í commenta kerfinu. Takk!

    Sandra :: 3:00 AM ::

      Farðu að sofa Sandra!....

      Klukkan er margt en ég er ekki þreytt. Alveg rosalegt að ég geti ekki farið að venja mig af þessu næturbrölti. Ferlegt alveg hvað ég er alltaf geðveikt orkumikil og eirðarlaus eftir kl.23 á kvöldin.

      Fyrst við erum að tala um sjónvarpsþætti.
      Djúpa laugin! Guð minn eini hvað þessi gella (dökkhærða mongó umsjónínan) er þokkalega þroskaheft. Shit ég get varla horft á hana með allar þessar geiflur í andlitinu og feik attitude. Tókuð þið svo eftir að bolurinn sem hún var í í beinni útsendingu í DL föstudkv. var sá hinn sami og hún klæddist í beinni útsendingu´laugardagskv. á vaxtaræktarkeppninni.... fattaði hún ekki að sama fóliið horfði sennilega á DL OG keppnina...það hefur sennilega verið hrikalegur svitafnykur af rottunni það kvöldið.

      Allaveganna ástæðan sem ég byrjaði að tala um DL var sú að ég hef smá spurningu handa lesendum góðum sem horfðu einngi á þáttinn á föstudaginn.
      Hvað fyndist ykkur um það ef þið vissuð að spyrillinn ætti yndislega kærustu sem var erlendis vikuna fyrr í þættinum og var að koma heim í dag og hún vissi ekkert af þessu? Mynduð þið vera sátt ef maki ykkar hefði gert slíkt hið sama í því yfirskini að þetta hafi verið áskorun frá vinnufélögum? Break up eða make up?

    Sandra :: 2:51 AM ::

      Þokkalegt þriðjudags vídjókvöld....

      Átti frábært vídjókvöld með Kristínu vinkonu minni. Hún eldaði góðan mat (takk kærlega fyrir besta rétt í heimi....sleppum kannsi að bæta við karrýi næst ok) og var tilbúin með billjón mikið af spólum handa mér til að velja úr til að horfa á eftir The Amazing Race, (horfðum á Blow með Johnny Deep,hún var geggjuð!) djöfull þoli ég ekki vinkonurnar sem eiga að vera model, mér finnst fúlt að The air traffic controllers kallarnir duttu út og svo rauðhærða beyglan sem er engaged félaga sínum. Hún er ekkert smá yfirnáttúrulega frek kellingin, greyið gaurinn!
      En hvernig er þetta annars? er myndavéla crew sem fylgir hverju einasta liði út um allt? og er ekkert mál fyrir þá þá alltaf að fá sæti í fullbókaðar vélar. ég var aðeins að spegúlera í þessu.

    Sandra :: 2:45 AM ::

    Gert af:
    FTG